20. okt
Bílvelta við HúsavíkAlmennt - - Lestrar 386
Karlmaður velti bifreið sinni í nágrenni Húsavíkur í kvöld og er talið að bíllinn hafi farið tvær til þrjár veltur.
Fréttavefur Morgunblaðsins greinir frá þessu en atvikið átti sér stað á Kísilvegi við Norðausturveg.
Tildrög slyssins eru óljós samkvæmt lögreglu og meiðslin voru ekki alvarleg. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Akureyri til aðhlynningar.