Basalt arkitektar hlutu Hönnunarverðlaun Íslands 2018Almennt - - Lestrar 559
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fimmta sinn á dögunum og fór verðlaunaafhendingin fram við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum.
Forsætisráðherra Íslands Katrín Jakobsdóttir, afhenti verðlaunin sem Basalt arkitektar fengu fyrir arkitektúr í íslenskri baðmenningu.
Marcos Zotes, Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela eru eigendur Basalt Arkitekta en þau hafa lagt ríkulega til þróunar baðstaða og baðmenningar á Íslandi en ýjustu dæmin eru The Retreat við Bláa lónið í samstarfi við Design Group Italia og GeoSea sjóböðin á Húsavík.
„Basalt arkitektar hafa einstakt lag á að tvinna mannvirki saman við náttúruna og hafa sýnt gott fordæmi þegar kemur að hönnun baðstaða. Byggingarlistin er í hæsta gæðaflokki þar sem hvert smáatriði er úthugsað og rými eru hönnuð af virðingu og látleysi. Arkitektúrinn skapar ramma fyrir einstaka upplifun gesta í stórbrotinni náttúru landsins.
Í frétt á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar Íslands segir að Hönnunarverðlaun Íslands séu þýðingarmikil fyrir íslenskt samfélag. Þótt vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi sé að aukast er mikilvægt að vekja athygli og dýpka skilning á gildi góðrar hönnunar og einnig gildi hönnunar og skapandi hugsunar þvert á atvinnugreinar.
Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Samtök iðnaðarins, Landsvirkjun og Íslandsstofu.
Einkenni Hönnunarverðlaunanna er hannað af þeim Elsu Jónsdóttur og Birni Loka í stúdíó Krot og Krass í samvinnu við Kristínu Maríu Sigþórsdóttur.
Hér er hægt að lesa um Lava Centre á Hvolsvelli sem hlaut viðurkenningu fyrir „Bestu fjárfestingu“ í hönnun 2018