Baldvin Valdemarsson ráðinn sviðsstjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá SSNE

Baldvin Valdemarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá SSNE.

Baldvin Valdemarsson.
Baldvin Valdemarsson.

Baldvin Valdemarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá SSNE. 17 sóttu um starfið og lesa má hverjir það voru hér.

Starfsstöð Baldvins verður á Húsavík en frá þessu greinir á heimasíðu SSNE.

Baldvin hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar síðan 2012 þar sem hann gegnir fjölbreyttum verkefnum, s.s. verkefnum tengdum sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, rekstrarráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri auk virkrar þátttöku í vinnu við innviðagreiningu fyrir Norðurland eystra.

Þar á undan gengdi hann fjölbreyttum stjórnendastörfum, m.a. sem framkvæmdastjóri Slippsins og við eigin atvinnurekstur. Baldvin hefur því yfirgripsmiklar þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu, reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar, af atvinnuþróun og nýsköpun. Auk þess hefur hann langa reynslu af þátttöku í samfélags- og sveitarstjórnarmálum. Baldvin er með Cand.Oecon gráðu frá Háskóla Íslands. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744