Baldvin Valdemarsson ráðinn sviðsstjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá SSNEAlmennt - - Lestrar 298
Baldvin Valdemarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri atvinnu- og byggðaþróunar hjá SSNE. 17 sóttu um starfið og lesa má hverjir það voru hér.
Starfsstöð Baldvins verður á Húsavík en frá þessu greinir á heimasíðu SSNE.
Baldvin hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar síðan 2012 þar sem hann gegnir fjölbreyttum verkefnum, s.s. verkefnum tengdum sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, rekstrarráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri auk virkrar þátttöku í vinnu við innviðagreiningu fyrir Norðurland eystra.
Þar á undan gengdi hann fjölbreyttum stjórnendastörfum, m.a. sem framkvæmdastjóri Slippsins og við eigin atvinnurekstur. Baldvin hefur því yfirgripsmiklar þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu, reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar, af atvinnuþróun og nýsköpun. Auk þess hefur hann langa reynslu af þátttöku í samfélags- og sveitarstjórnarmálum. Baldvin er með Cand.Oecon gráðu frá Háskóla Íslands.