Bærinn skreyttur með ruslatunnumAlmennt - - Lestrar 468
Í sumar hyggjast notendur Miðjunnar á Húsavík framleiða fallegar og litríkar ruslatunnur til að koma fyrir í bænum. Að sögn starfsmanna Miðjunnar er þetta gert vegna þess að vöntun sé bæði á ruslafötum fyrir almenning og útilistaverkum í bænum.
„Við verðum með flottan hóp ungs fólks í vinnu í sumar við að framleiða föturnar ásamt öðrum listaverkum. Einnig munum við sjá um að tæma föturnar og hreinsa til í bænum. Okkur þykir sérstaklega mikilvægt að það líti allt vel út í kringum okkur.“ Segir Lilja Hrund Másdóttir, sem kemur að framleiðslu ruslafatanna.
„Föturnar verða eins ólíkar og þær eru margar, búnar til úr því efni sem við eigum. Auðvitað gengur hratt á birgðirnar svo það væri æðislegt að komast í afgagnsspýtur ef einstaklingar og fyrirtæki liggja á svoleiðis." Bætir Lilja Hrund við.
Fyrsta ruslafatan sem komin er stendur á jólatréstorginu við samkomuhúsið en á næstu dögum og vikum mun þeim fjölga víðsvegar um bæinn. Það verður gaman að fylgjast með þessu verkefni í sumar og sjaldan hefur verið jafn mikil ástæða til að henda rusli og nú.
Einar Annel, Steini og Guðni Páll ánægðir með listaverkið