28. sep
Atli Steinn nýr skipulagsfulltrúi í Þingeyjarsveit og SkútustaðahreppiAlmennt - - Lestrar 363
Atli Steinn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn í starf skipulags-fulltrúa hjá Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi og hefur þegar hafið störf.
Atli Steinn tekur við embættinu af Guðjóni Vésteinssyni sem lætur af störfum 30. september n.k.
Fram kemur í tilkynningu að Atli Steinn sé með B.Sc í umhverfis- og orkufræði og kennsluréttindi frá Háskólaunum á Akureyri.
Þá er hann að ljúka M.Sc í skipulagsfræði frá Landbúnaðar-háskóla Íslands.