Ánægja meðal starfsmanna PCC með sérkjarasamningAlmennt - - Lestrar 278
Ef marka má kynningarfundi sem stéttarfélögin Þingiðn og Framsýn hafa staðið fyrir með starfs-mönnum PCC BakkiSilicon hf. og atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn sem lauk kl. 16:00 í gær er mikil ánægja með samninginn.
Alls höfðu 103 starfsmenn atkvæðisrétt. Rúmlega 32% greiddu atkvæði um samninginn, þar af samþykktu 94% starfsmanna samninginn meðan 6% sögðu nei við samningnum.
Sérkjarasamningurinn skoðast því samþykktur og tekur gildi frá og með 1. apríl sl.
Á heimasíðu stéttarfélaganna segir að full ástæða sé til að þakka trúnaðarmönnum starfsmanna og forsvarsmönnum PCC fyrir samstarfið en fullur vilji er meðal samstarfsaðila að innleiða ýmsar breytingar á samningstímanum starfsmönnum og fyrirtækinu til hagsbóta.