32% fólksfjölgun á 4 árum í Skútustaðahreppi

Líklega hefur Skútustaðahreppur sett einhvers konar Íslandsmet í fólksfjölgun undanfarin fjögur ár.

32% fólksfjölgun á 4 árum í Skútustaðahreppi
Almennt - - Lestrar 324

Hverfjall í Mývatnssveit.
Hverfjall í Mývatnssveit.

Líklega hefur Skútustaðahreppur sett einhvers konar Íslandsmet í fólksfjölgun undanfarin fjögur ár.

Síðan 2013 hefur íbúum fjölgað úr 370 í 490 talsins sem er hvorki meira né minna en 32% fólksfjölgun.

Í frétt á heimasíðu Skútustaðahrepps segir að á einu ári hafi íbúum fjölgað um 16%, eða úr 425 í 493. Um 120 manns hafa annað ríkisfang en íslenskt eða um 24%. Fólksfjölgunin endurspeglast m.a. í mikilli aukningu leikskólabarna undanfarin misseri og er gaman að sjá ungt fjölskyldufólk snúa til baka í heimahagana.

"Íbúafjöldi í Skútustaðahreppi hefur sveiflast nokkuð í gegnum tíðina. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru þeir fæstir 276 talsins árið 1910 en flestir árið 1980 eða 547 sem var í miðjum Kröflueldum. Þetta var á árum Kísiliðjunnar og hélst fólksfjöldinn yfir 500 allt til ársins 1994 en þá fór hann niður í 497 íbúa. Eftir það fækkaði íbúum smátt og smátt. Kísiliðjunni var lokað í nóvember 2004 en þá voru íbúar 442. Í kjölfarið fór að halla verulega undan fæti og fór fólksfjöldinn niður í 370 árið 2013. Síðan þá hefur þróunin snúist við, til allrar hamingju.

Íbúafjölgunina undanfarin ár má án nokkurs vafa fyrst og fremst rekja til uppgangs ferðaþjónustunnar og að hún er orðin að heilsárs atvinnugrein í meira mæli en áður. Hér hafa m.a. verið byggð tvö stór hótel og stofnuð afþreyingarfyrirtæki í ferðaþjónustu sem þarfnast meiri mannafla. Jarðböðin hafa m.a. brugðist við aukinni eftirspurn á fasteigna-markaði með því að byggja sjö íbúðir í tveimur raðhúsum í Klappahrauni.

Sveitarfélagið vinnur nú að gerð húsnæðisáætlunar til næstu 10 ára til að reyna að kortleggja eftirspurnina. Afrakstur þeirrar vinnu mun liggja fyrir á næstu vikum. Þessi mikla fólksfjölgun þrýstir á innviði sveitarfélagsins, sérstaklega á leikskólann þar sem mikil aukning hefur verið undanfarin misseri. En þetta er fyrst og fremst jákvæð áskorun og sveitarfélagið hefur brugðist við þessu með talsverðum breytingum á leikskólanum síðustu misseri.

Það er ástæða til þess að horfa bjartsýn fram á veginn í Mývatnssveit". Segir að lokum í fréttinni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744