26. apr
100 ára afmæli í ÞingeyjarsveitAlmennt - - Lestrar 457
Þann 25. apríl varð Guðrún Glúmsdóttir í Hólum í Reykjadal 100 ára.
Guðrún er elsti íbúi Þingeyjarsveitar og ber aldurinn vel.
Dagbjört Jónsdóttir sveitarstjóri færði Guðrúnu blóm og konfekt frá sveitarfélaginu í tilefni dagsins.
"Sveitarstjóri fékk afar vinalegar móttökur en Guðrún eða Gunna í Hólum eins og við köllum hana, fagnaði þessum merka áfanga á heimili sonar síns og tengdadóttur í faðmi fjölskyldu sinnar". Segir á heimasíðu Þingeyjarsveitar.