Yfir 40 komur skemmtiferðaskipa til Húsavíkur bókaðar í sumarAlmennt - - Lestrar 233
Gert er ráð fyrir 44 komum skemmtiferðaskipa til Húsavíkur á komandi sumri.
Fyrsta skipið er samkvæmt áætlun í byrjun maí og síðasta í lok september.
"Flest skipanna hafa komið áður en eitthvað er um skip sem eru að koma í fyrsta skipti til Húsavíkur.
Það er eins og áður segir búið að bóka 44 skipakomur en þetta getur breyst eitthvað til og frá.
Það verður því mikið líf og fjör á höfninni og í bænum í sumar og þjónustuaðilar ættu að hafa í nógu að snúast við að þjónusta ferðafólk" segir Þórir Örn Gunnarsson hafnarstjóri Norðurþings.
Meðfylgjandi er listi yfir þau skemmtiferðaskip sem eru væntanleg til Húsavíkur í sumar.
Með því að smella á listann er hægt að skoða hann í hærri upplausn.
NG Endurance kom í fyrra en er ekki á listanum í ár.
NG Explorer kemur aftur í sumar.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.