Völsungur sigrađi Ţrótt Nes öđru sinni

Völsungur sigrađi Ţrótt Nes öđru sinni um helgina í Mizunodeild kvenna.

Völsungur sigrađi Ţrótt Nes öđru sinni
Íţróttir - - Lestrar 811

Rut Gomez var stigahćst í leiknum međ 14 stig.
Rut Gomez var stigahćst í leiknum međ 14 stig.

Völsungur sigrađi Ţrótt Nes öđru sinni um helgina í Mizunodeild kvenna.

Ţróttarar höfđu veriđ á miklu flugi í deildinni fram ađ ţessari helgi en liđ Völsungs er ţó hćttulegt. Ţćr sigruđu leik gćrdagsins örugglega, 3-0, og gengi liđsins var einnig gott í dag.

Ţróttarar byrjuđu vel í fyrstu hrinu og höfđu forystuna en Völsungur sótti fljótt í sig veđriđ og var komiđ yfir um miđja hrinuna. Munurinn jókst svo jafnt og ţétt og lauk hrinunni međ sannfćrandi sigri Völsungs, 25-19. Ţróttarar byrjuđu aftur vel í annarri hrinu en Völsungur jafnađi fljótt. Hrinan var svo mjög spennandi fram ađ lokum en aftur sigu Völsungar fram úr og tryggđu sér 25-21 sigur.

Í ţriđju hrinu var ţađ svo Völsungur sem byrjađi mun betur. Ţćr komust í 4-0 og var munurinn mestur í stöđunni 12-4. Ţá hófst endurkoma Ţróttar og náđi liđiđ ađ minnka muninn í eitt stig í stöđunni 17-16. Ţá virtist allt hrökkva í baklás og Völsungur skorađi nćstu 7 stig. Eftirleikurinn var auđveldur og sigrađi Völsungur hrinuna 25-17 og leikinn ţar međ 3-0.

Rut Gomez var stigahćst í liđi Völsungs međ 14 stig en Tinna Rut Ţórarinsdóttir og Sćrún Birta Eiríksdóttir skoruđu 8 stig hvor fyrir Ţrótt Nes. Eftir helgina er Völsungur međ 16 stig eftir 9 leiki en liđ Ţróttar Nes er međ 13 stig eftir 7 leiki. (Blakfréttir.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744