Völsungur með góðan sigur gegn KHÍþróttir - - Lestrar 761
Völsungur er í hópi fjögurra liða sem unnið hafa fyrstu tvo leiki sína í 2. deild kvenna í knattspyrnu og eru því á toppnum.
Hin liðin þrjú eru Fjölnir, Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir og Fram.
Völsungur tók í dag á móti Knattspyrnufélaginu Hlíðarenda á Vodafonevellinum og hafði sigur 2-0.
Hildur Anna Brynjarsdóttir kom heimastúlkum yfir á á 24. mínútu og Samara De Freitas Martins Lino bætti við öðru marki átta mínútum fyrir leikslok.
Hildur Anna Brynjarsdóttir kom Völsungum yfir í fyrri hálfleik.
Samara De Freitas Martins Lino skoraði síðara mark Völsungs.
Bryndís Eiríksdóttir og Árdís Rún Þráinsdóttir berjast um boltann.
Hart barist.
Mar Sanchez Celdran markvörður Völsungs átti góðan leik.
Hlíðarendastúlkur sækja að Mörtu Sóley Sigmarsdóttur.
Sarah Catherine Elnicky.
Frábær markvarsla þarna.
Rauðar með boltann.
Elfa Mjöll Jónsdóttir sækir að marki.
Krista Eik Harðardóttir reynir skot að marki.
Gestirnir sækja.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.









































































640.is á Facebook