Völsungur lagði Fjarðabyggð/Hött/Leikni á Húsavík

Völsungur tók á móti Fjarðabyggð/Hetti/Leikni á Húsavíkurvelli í 2. deild kvenna í gærkveldi.

Völsungur lagði Fjarðabyggð/Hött/Leikni á Húsavík
Íþróttir - - Lestrar 624

Aimee Louise Durn skoraði mörk Völsungs.
Aimee Louise Durn skoraði mörk Völsungs.

Völsungur tók á móti Fjarðabyggð/Hetti/Leikni á Húsavíkurvelli í 2. deild kvenna í gærkveldi.

Aimee Louise Durn kom Völsungum yfir strax á 2. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið.

Hún bætti við öðru marki sínu á 35. mínútu og tvöfaldaði forystu Völsungs. Þannig var staðan í hálfleik. 

Julie Gavorski minnkaði muninn fyrir gestina með marki úr vítaspyrnu 69. mínútu og þar við sat. 2-1 sigur Völsungs sem er með sex stig eftir fyrstu tvo leiki sína. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744