Völsungur hreppti silfrið

Kvennalið Völsungs í blaki sótti KA heim í gærkveldi þar sem liðin mættust í þriðja leik í úrslitakeppni á Íslandsmeistaramótinu 2024-2025.

Völsungur hreppti silfrið
Íþróttir - - Lestrar 562

Silfurlið Völsungs. Lj. Blakdeild Völsungs
Silfurlið Völsungs. Lj. Blakdeild Völsungs

Kvennalið Völsungs í blaki sótti KA heim í gærkveldi þar sem liðin mættust í þriðja leik í úrslitakeppni á Íslandsmeistaramótinu 2024-2025.

KA hafði unnið fyrstu tvo leikina 3-0 og dugði því einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn.

KA vann fyrstu tvær hrinurna en Völsungur þá þriðju og KA tryggði sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri í fjórðu hrinunni og þar með leiknum 3-1.

En engu að síður frábært tímabil hjá Völsungum. 

Aðsend mynd

Silfurlið Völsungs 2024-2025.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744