Völsungssigur í baráttuleikÍþróttir - - Lestrar 908
Völsungur hafði sigur í miklum baráttuleik gegn HK-b í 1. deild kvenna í blaki en leikið var í íþróttahöllinni á Húsavík í gær.
Gestirnir byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinu nokkuð örugglega 16-25 og voru þar með komnar með forystu.
En heimastúlkur voru ekki á því að láta slá sig út af laginu og unnu aðra hrinu 25-14 og þriðju hrinu 25-22 og staðan orðin 2 - 1 í hrinum talið. Í fjórðu hrinu var jafnt á með liðunum lengst af en gestirnir voru sterkari undir lokin og unnu hrinuna 22-25.
Oddahrinuna byrjuðu heimastúlkur af miklum krafti og nutu þess greinilega að spila. Þær héldu út alla hrinuna og unnu hana 15-6 og þar með leikinn 3-2.
Stigahæstar Völsunga voru Tamara Kaposi-Pető með 31 stig og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir með 16 stig.
“Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir okkur en það þurfti að hafa fyrir honum. Okkur gengur vel í deildinni en framundan er áframhaldandi vinna við að byggja upp unga leikmenn og hjálpa þeim að finna öryggi inni á vellinum” sagði Tamás Kaposi þjálfari Völsungs sigurreifur eftir frábæran leik.
Ljósmyndari 640.is var á leiknum og tók meðfylgjandi myndasyrpu.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.











































































640.is á Facebook