09. maí
Völsungar fara vel af staðÍþróttir - - Lestrar 246
Völsungar gerðu góða ferð austur á Reyðarfjörð í gær þar sem þeir unnu Fjarðabyggð 3:0 í Fjarðabyggðarhöllinni.
Þetta var fyrsti leikur þeirra í 2. deildinni þetta tímabilið og komu öll mörkin í fyrri hálf-leik.
Eftir aðeins fimm mínútna leik skoruðu heimamenn sjálfsmark og Sæþór Olgeirsson bætti síðan við tveimur mörkum á næsta hálftímanum.
Og þar við sat.