Völsungar á sigurbraut

Völsungar héldu sigurgöngu sinni í 2. deild karla áfram í kvöld þegar þeir fengu Hauka úr Hafnarfirði í heimsókn.

Völsungar á sigurbraut
Íþróttir - - Lestrar 229

Sæþór fagnar marki. Mynd úr safni.
Sæþór fagnar marki. Mynd úr safni.

Völsungar héldu sigurgöngu sinni í 2. deild karla áfram í kvöld þegar þeir fengu Hauka úr Hafnarfirði í heimsókn.

Heimamenn áttu harma að hefna frá fyrri viðureign liðanna á Ásvöllum en það voru gestirnir sem skoruðu samt fyrsta markið.

Það var gegn gangi leiksins að mati vefstjóra og kom upp úr hornspyrnu þegar um tíu mínútu voru til hálfleiks. Gísli Þröstur Kristjánsson sá um að koma knettinum í netið.

Völsungar jöfnuðu leikinn snemma í síðari hálfleik og var þar að verki Santiago Feuillassier Abalo sem átti mjög góðan leik í kvöld.

Þetta var á 54" mín. leiksins og þremur mínútum síðar lagði Santiago upp sigurmarkið fyrir markamaskínuna Sæþór Olgeirsson og staðan orðin 2-1 heimamönnum í vil.

Og þar við sat og fimmti sigur Völsunga í röð staðreyndVölsungur er með 26 stig í 2. sæti deildarinnar eftir 14 leiki. Sæþór er sjóðheitur þetta sumarið og markahæsti leikmaður deildarinnar með 15 mörk. 

Þróttur V er sem fyrr í efsta sæti, eru með 28 stig en eiga leik til góða á Völsung. KF sem var jafnt Völsungi í 2-3 sæti gerði jafntefli við Leikni F í kvöld og er í þriðja sæti með 24 stig.

Njarðvík og KV eru síðan í 4-5 sæti með 22 stig og eiga leiki inni á Völsung.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Santiago Feuillassier Abalo. 

Mynd úr safni.

 




  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744