03. mar
Vill koma upp fiskeldi á RaufarhöfnAlmennt - - Lestrar 355
Félagið Björg Capital hefur lýst yfir áhuga á að koma upp tíu þúsund tonna fiskeldi á Raufarhöfn.
Sveitarstjóri Norðurþings segir mikilvægt að skella engum hurðum þegar svo stór verkefni rekur á fjörur sveitarfélagsins.
Ríkisútvarpið greinir frá þessu.
Fiskeldið yrði þar sem Síldarvinnsla ríkisins var áður til húsa. Síðustu tíu ár hefur svæðið verið í umsjá sveitarfélagsins. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi, segir að erfitt hafi reynst að byggja þar upp starfsemi. Björg Capital hefur nú lýst yfir áhuga á að kaupa fasteignir á lóðinni.





























































640.is á Facebook