Vertu með okkur í liði - Álfasala SÁÁ stendur yfir

Álfasala SÁÁ hófst í gær, miðvikudaginn 7. maí og er tekjum af sölunni ætlað að styðja við meðferðarstarfið hjá SÁÁ.

Vertu með okkur í liði - Álfasala SÁÁ stendur yfir
Fréttatilkynning - - Lestrar 439

Álfasala SÁÁ hófst í gær, miðvikudaginn 7. maí og er tekjum af sölunni ætlað að styðja við meðferðarstarfið hjá SÁÁ.

Af því tilefni afhenti Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, Ölmu Möller Heilbrigðisráðherra fyrsta Álfinn en þeim til aðstoðar var aðalleikarinn í auglýsingum Álfsins 2025
 
Í ár klæðist Álfurinn landsliðsbúningnum í tilefni þess að stelpurnar okkar eru á leiðinni á EM í fótbolta í sumar.

Það eru því tvær útgáfur af Álfinum þetta árið, blár og hvítur en þeir félagar eiga skemmtileg samskipti í auglýsingaherferð Álfsins þar sem Álfurinn lifnar við í gerfi brúðu.
 
Álfasalan er mikilvægasta fjáröflun SÁÁ og gerir SÁÁ kleift að halda úti öflugu meðferðarstarfi sem hefur hjálpað þúsundum Íslendinga.

Þetta er í 39 skiptið sem Álfasalan fer fram og lýk­ur henni þann 11.maí. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744