Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlauna ÖBÍFréttatilkynning - - Lestrar 334
Öryrkjabandalag Íslands veitir Hvatningarverðlaun sín árlega á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember.
Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.
Verðlaun eru veitt í þremur flokkum: Flokki einstaklinga. Flokki fyrirtækja/stofnana. Flokki umfjöllunar/kynningar.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verðlaunanna.
Tilnefningar óskast fyrir lok dags 15. september.
Tilnefningar má senda með rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: http://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI/tilnefningar2015eydublad/
Einnig má senda tilnefningar í bréfpósti til ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.