Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlauna ÖBÍ

Öryrkjabandalag Íslands veitir Hvatningarverðlaun sín árlega á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember.

Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlauna ÖBÍ
Fréttatilkynning - - Lestrar 335

Öryrkjabandalag Íslands veitir Hvatningarverðlaun sín árlega á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember.

Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.

Verðlaun eru veitt í þremur flokkum: Flokki einstaklinga. Flokki fyrirtækja/stofnana. Flokki umfjöllunar/kynningar. 

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verðlaunanna.

Tilnefningar óskast fyrir lok dags 15. september.

Tilnefningar má senda með rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: http://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI/tilnefningar2015eydublad/

Einnig má senda tilnefningar í bréfpósti til ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744