Þakkir frá Björgunarsveitinni Garðari

Björgunarsveitin Garðar vill koma á framfæri þökkum til Trésmiðjunnar Rein, Íslandsbanka á Húsavík og Landsvirkjunar fyrir rausnarlega gjöf fyrirtækjanna

Þakkir frá Björgunarsveitinni Garðari
Fréttatilkynning - - Lestrar 917

Björgunarsveitin Garðar vill koma á framfæri þökkum til Tré-smiðjunnar Rein, Íslandsbanka á Húsavík og Landsvirkjunar fyrir rausnarlega gjöf fyrirtækjanna til sveitarinnar.

Um er að ræða átta GPS-tæki sem sett verða í bíla sveitarinnar auk annara farartækja s.s. báta, sleða og hjóla, en eldri GPS-tæki voru úr sér gengin.

Í tilkynningu segir að ógerlegt sé að halda úti björgunarsveit án stuðnings fyrirtækja og einstaklinga og enn og aftur þakkar björgunarsveitin Garðar öllum þeim sem hafa verið hliðhollir henni og styrkt í gegnum tíðina.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744