Tap í Ólafsvík - Sigurður Hrannar með tvennu

Völsungur sótti Víking heim í Ólafsvík í gær þar sem heimamenn höfðu 3-2 sigur í miklum baráttuleik.

Tap í Ólafsvík - Sigurður Hrannar með tvennu
Íþróttir - - Lestrar 97

Arnar Pálmi fyrirliði Völsungs.
Arnar Pálmi fyrirliði Völsungs.

Völsungur sótti Víking heim í Ólafsvík í gær þar sem heimamenn höfðu 3-2 sigur í miklum baráttu-leik.

Á fésbókarsíðu Græna hersins segir svo frá leiknum:

2-3 tap í Ólafsvík. Ótrúlega ömurlega svekkjandi í mjög svo kaflaskiptum leik. Spilum á móti miklum vindi í fyrri hálfleik og leysum það mjög vel eftir fyrsta korterið. Heimamenn komast í 1-0 eftir hornspyrnu. Við fáum víti fljótlega eftir það sem fer forgörðum í slánna ásamt því að skapa okkur 2-3 mjög góð færi.

Eftir vel útfærða sókn jöfnum við í lokasókn fyrri hálfleiks þar sem Sigurður Hrannar Þorsteinsson skallar boltann inn eftir fyrirgjöf Arnars Pálma. 1-1 í hálfleik.

Sennilega vorum við of borubrattir að fara í seinni hálfleikinn með vindinn í bakið en við byrjuðum hann mjög illa, sváfum á verðinum og lendum 2-1 undir. Gott mark Víkinga kemur þeim svo í 3-1. Menn byrja á árunum aftur og sækja mikið á Víkinga sem endar með marki Sigurðar Hrannars á 85.mín, 3-2 og hörkuleikur. Á 89.mínútu sleppur Kifah í gegn og setur boltann framhjá markmanni sem tekur hann niður fyrir færið. Rautt spjald og aukaspyrna í D-boganum sem fer í varnarmann og aftur fyrir. Þung pressa í lokin en inn vildi boltinn ekki.

Mjög flottur leikur að mestu leyti hjá okkar mönnum og ekki vantaði að skapa færin. Komum illa út í seinni og þá verður okkur refsað. En við lærum af þessu. Full trú á liðinu okkar.

Næsti leikur er gegn KFG næsta laugardag á PCC vellinum og þar ætlum við okkur sigur. Mætum þá og styðjum strákana!

Víkingar eru á toppi 2. deildar með 7 stig en Völsungur í 9. sæti með 3 stig. 
 
Í dag spila stelpurnar gegn ÍH kl.16.00 á PCC vellinum. Við mætum öll og styðjum þær!
 
ÁFRAM VÖLSUNGUR!!!
 
Sérlegur ljósmyndari 640.is á Snæfellsnesi, Alfons Finnsson, tók meðfylgjandi myndir.
 
 Aðsend mynd
 
Arnar Pálmi Kristjánsson fyrirliði Völsungs í baráttu um boltann í gær.
 
Aðsend mynd
 
Grænir og bláir, Arnar Pálmi og Indriði Ketilsson þeir grænu.
 
Ljósmynd Hafþór-640.is
 
Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði bæði mörk Völsungs gegn Víkingi.
 
 
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744