Super Break mun fljúga áfram til Akureyrar

Flug­klas­inn AIR 66N, sem vinnur að markaðssetn­ingu Ak­ur­eyr­arflug­vall­ar tilkynnti í dag að breska ferðaskrif­stof­an Super Break muni halda áfram

Super Break mun fljúga áfram til Akureyrar
Fréttatilkynning - - Lestrar 341

Lent á Akureyri. Lj. Isavia/Auðunn Níelsson.
Lent á Akureyri. Lj. Isavia/Auðunn Níelsson.

Flug­klas­inn AIR 66N, sem vinnur að markaðssetn­ingu Ak­ur­eyr­arflug­vall­ar tilkynnti í dag að breska ferðaskrif­stof­an Super Break muni halda áfram áætl­un­ar­flugi til Ak­ur­eyr­ar næsta vet­ur.

Í tilkynningunni segir að breytingar verða gerðar á skipulaginu og er áætlað að fyrstu ferðirnar verði farnar í byrjun febrúar 2020, em það er seinna en verið hefur, og að flogið verði hingað fram í apríl.

Chris Hagan, sem hefur yfirumsjón með verkefninu hjá Super Break, segir að 14 ferðir verði settar í sölu til að byrja með frá mikilvægustu héraðsflugvöllunum í Bretlandi.

Vonir standa til þess að hægt verði að bæta fleiri ferðum við en þetta verður þriðji veturinn sem Super Break býður upp á þessar ferðir milli Akureyrar og Bretlands. Það er breska flugfélagið Tit­an Airways sem sér um Íslandsflugið fyrir Super Break.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744