Stefán Pétur Sólveigarson nýr verkefnastjóri hjá ÞÞAlmennt - - Lestrar 489
Stefán Pétur Sólveigarson hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá Þekkingarneti Þingeyinga.
Um er að ræða starf verkefnastjóra í nýsköpun á Húsavík.
Stefán Pétur hefur starfað sem vöruhönnuður undan-farin ár og hefur margvíslega reynslu og menntun á sviði hönnunar og nýsköpunar.
Í tilkynningu á heimasíðu ÞÞ segir að Stefán Pétur muni leiða uppbyggingarstarf á sviði nýsköpunar á Húsavík í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk Þekkingarnetsins.
Meðal verkefna verður uppsetning og mótun Fab-lab smiðju, stofnun frumkvöðlaseturs og tengslamyndun innan og utan lands í tengslum við þessa starfsemi. Þá mun Stefán Pétur koma að vinnu við þróun húsnæðiskosts og útfærslu kringum það á næstu mánuðum.
Stefán Pétur hyggst flytja til Húsavíkur með fjölskyldu sinni á komandi sumri til að sinna starfinu og mun hefja störf á næstu vikum.





























































640.is á Facebook