Spilað fyrir hafið

Á föstudaginn næstkomandi, þann 17. júlí mun Guðni Bragason spila á tónleikum við Húsavíkurvita.

Spilað fyrir hafið
Fréttatilkynning - - Lestrar 709

Húsavíkurviti.
Húsavíkurviti.
Á föstudaginn næstkomandi, þann 17. júlí mun Guðni Bragason spila á tónleikum við Húsavíkurvita.
 
Á dagskránni eru lög af væntanlegri sólóplötu Guðna í bland við önnur lög tengd hafinu.
 
Tilefnið er samstarfsverkefni Húsvíkurstofu við Langanesbyggð en þeir síðarnefndu hafa skipulagt tónleikaröð við vitann á Fonti á Langanesi dagana 17. júlí – 1. ágúst. Þar mun Haukur Þórðarson, gítarleikari og nemi í FÍH spila á hverjum degi í 16 daga. 
 
Verkefnið sem styrkt er af Uppbygginarsjóði Norðausturlands er gert með þeim ásetningi að heiðra hafið fyrir allt sem það hefur gefið af sér en jafnframt til að minnast þess sem það hefur tekið. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744