Sögustund með Jólasveinunum í Dimmuborgum

Á laugardögum í sumar ætla Jólasveinarnir í Dimmuborgum að taka á móti gestum á Hallarflöt vel valda daga en sannkallað jólasumar eru framundan í

Sögustund með Jólasveinunum í Dimmuborgum
Fréttatilkynning - - Lestrar 326

Á laugardögum í sumar ætla Jólasveinarnir í Dimmuborgum að taka á móti gestum á Hallarflöt vel valda daga en sannkallað jólasumar eru framundan í Dimmuborgum

Bræðurnir ætla að vera með sögustund fyrir börn á öllum aldri og segja frá sér og lífi þeirra í Dimmuborgum.
 
Jólasveinarnir fengu einnig styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða á síðasta ári og nú príða Dimmuborgir nýjum skiltum með upplýsingum um bræðurna - bæði við innganginn í Dimmuborgir, niður á Hallarflöt, við Kaffi Borgir og síðan við jólasveinahellinn sjálfan. 

Sýningarplanið eru á eftirfarandi dögum: 

3. júlí kl 13:00
10. júlí kl 13:00 & 14:00
17. júlí kl 13:00 & 14:00
24. júlí kl 13:00 & 14:00
31. júlí kl 13:00 & 14:00
7. ágúst kl 13:00 & 14:00
 
6 ára og eldri borga 1500kr og miðasala fer fram á tix.is og í Kaffi Borgum. 
 
Fólk er svo hvatt til að taka með sér púða eða teppi til að sitja á en nokkrar gærur og kollar eru einnig á staðnum. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744