Skora á Vísi hf. að gera þegar í stað upp við starfsmenn

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum að senda frá sér yfirlýsingu vegna vangoldinna launa Vísis hf. til starfsmanna fyrirtækisins

Skora á Vísi hf. að gera þegar í stað upp við starfsmenn
Fréttatilkynning - - Lestrar 364

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum að senda frá sér yfirlýsingu vegna vangoldinna launa Vísis hf. til starfsmanna fyrirtækisins sem störfuðu í starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík áður en henni var lokað 1. maí 2014.

 

Þrátt fyrir niðurstöðu Félagsdóms um að fyrirtækinu bæri að greiða starfsmönnum laun í stað þess að vísa þeim á atvinnuleysisbætur hefur fyrirtækið ekki gert upp við starfsmenn.

Yfirlýsingu stjórnar- og trúnaðarmannaráðs Framsýnar er eftirfarandi: 

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar skorar á sjávarútvegsfyrirtækið Vísi hf. í Grindavík að virða fallinn dóm sem kveður á um að fyrirtækinu beri skylda til að gera upp laun við starfsmenn sem störfuðu í starfstöð fyrirtækisins á Húsavík sem lögð var niður 1. maí 2014. Því miður hefur fyrirtækið ekki séð ástæðu til að virða dóminn sem er ámælisvert svo ekki sé meira sagt.

Þá ítrekar Framsýn beiðni félagsins til Vinnumálastofnunar um að stofnunin veiti félaginu upplýsingar um hvernig staðið var á uppgjöri Vísis hf. við stofnunina sem greiddi starfsmönnum atvinnuleysisbætur á sama tíma og starfsmenn áttu samkvæmt niðurstöðu Félagsdóms að vera á launum hjá fyrirtækinu. 

Framsýn mælist eindregið til þess að niðurstaða fáist í málið á næstu dögum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744