Skonnortan Opal verður í Reykjavík í veturFréttatilkynning - - Lestrar 494
Á meðan haustið fýkur burt siglir skonnortan Opal frá Húsavík, vestur fyrir land og til Reykjavíkur.
Frá Hörpunni verður siglt í dag- og kvöldferðir með hópa af öllu tagi, hvort sem það eru tónleikagestir, siglarar, brúðkaup, norðurljós, fuglaskoðun eða fyrirtækjafundir.
Opal er 32 metra tvímastra skonnorta sem byggð var árið 1952. Hún hefur síðan verið endurbyggð til ferða með farþega og hefur nú, auk klefa fyrir farþega til gistingar í lengri ferðum, notalega setustofu í dekkshúsi og rúmgóðan borðsal með viðarkamínu neðan þilja.
Opal bættist í flota Norðursiglingar fyrr á þessu ári og hefur í sumar siglt um Scoresbysund á norðaustur Grænlandi, með farþega í lengri ferðum.





























































640.is á Facebook