Sigurður Illugason er Listamaður Norðurþings 2021Almennt - - Lestrar 214
Listamaður Norðurþings 2021 er Sigurður Helgi Illugason, leikari og tónlistarmaður.
Sigurður, eða Siggi Illuga eins og hann er best þekktur, ólst upp í Reykjadal til 16 ára aldurs.
Þá flutti hann til Akureyrar til að læra málaraiðn og kynntist þar konu sinni Guðrúnu Sigríði Gunnarsdóttur.
Frá þessu segir á vef Norðurþings.
Sigurður flutti til Húsavíkur árið 1981 til að spila fótbolta með Völsungi og hefur verið áberandi í samfélaginu síðan. Tónlist og leiklist hafa verið viðloðandi allt hans líf en hann byrjaði að spila á dansleikjum með föður sínu 14 ára gamall. Hann söng um tíma með karlakórnum Hreim og hefur verið í mörgum hljómsveitum, meðal annars Túpílökum sem hafa gefið út tvær plötur.
Árið 1990 lenti Sigurður, að eigin sögn, óvart í því að taka þátt í uppfærslu Leikfélags Húsavíkur á Land míns föður og þar hefur hann verið síðan; í raun eru ekki mörg verk sem LH hefur sett upp og hann ekki komið nálægt á einn eða annan hátt.
Sigurður er mikill skemmtikraftur og alltaf til í að taka þátt í verkefnum sem gleðja fólk. Það er ekki sjaldgæf sjón að sjá hann troða upp með gítarinn á ýmsum viðburðum þar sem gestir fá að njóta tónlistar- og leiklistarhæfileika hans.
Hann var sérstaklega mikið í sviðsljósinu á þessu ári sem Óskar Óskarsson í Óskarsherferð Húsvíkinga og má með sanni segja að hann eigi sinn þátt í okkar velgengni þar.
Í tilnefningunni sem barst um Sigurð segir: „Ég vil tilnefna listamann Norðurþings 2021, þó fyrr hefði verið, því hann er búinn að spila og koma fram í ansi mörg ár án endurgjalds. Honum finnst þetta sjálfsagt. Það er Sigurður Illugason, málarameistari og stórleikari okkar Húsvíkinga“.