Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir ráðin fjölmenningarfulltrúi Norðurþings

Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir hefur verið ráðin fjölmenningarfulltrúi Norðurþings og tekur hún til starfa í byrjun maí.

Sigrún Björg og sonurinn Valur Egilsson.
Sigrún Björg og sonurinn Valur Egilsson.

Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir hefur verið ráðin fjölmenningar-fulltrúi Norðurþings og tekur hún til starfa í byrjun maí.

Sigrún Björg hefur lokið grunn- og meistaranámi í mannfræði frá Háskóla Íslands og hefur unnið sem verkefnastjóri að mannúðar- og innflytjendamálum bæði hjá Sendiskrifstofu Íslands í Úganda og hjá Þekkingarneti Þingeyinga þar sem hún vann að rannsókn á högum innflytjenda á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.

Sigrún hefur sömuleiðis tekið þátt í sjálfboðaliðaverkefnum á vegum Rauða Krossins, var sjálfboðaliði hjá mannréttindaskrifstofu Íslands og vann við sjálfboðastörf í Úganda og í Palestínu.

Á heimasíðu Norðurþings er Sigrún og fjölskylda hennar boðin velkomin til Húsavíkur og þess getið að tilhlökkun sé hjá starsfólki þess að vinna með henni að uppbyggingu á nýju og spennandi starfi.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744