Sarah og Sæþór best, Sigrún Marta og Rafnar Máni efnilegust

Á lokahófi meistaraflokka Völsungs í knattspyrnu sem haldið var um síðustu helgi var árangri sumarsins fagnað og sumrinu formlega slúttað.

Á lokahófi meistaraflokka Völsungs í knattspyrnu sem haldið var um síðustu helgi var árangri sumarsins fagnað og sumrinu formlega slúttað. 

Eins og undanfarin ár kusu leikmenn, þjálfarar og stjórn Völsunga ársins ásamt besta og efnilegasta leikmanni.
 
Hjá kvennaliðinu var Sarah Catherine Elnicky kosin best, Sigrún Marta Jónsdóttir efnilegust og Árdís Rún Þráinsdóttir er Völsungur ársins.
 
Karlamegin var Sæþór Olgeirsson kosinn bestur, Rafnar Máni Gunnarsson efnilegastur og Bjarki Baldvinsson er Völsungur ársins.
 
Þjálfarar og fyrirliðar liða í 2.deild karla kusu einnig á dögunum lið ársins og kusu besta og efnilegasta leikmann ásamt þjálfara ársins.

"Skemmst er svo frá því að Sæþór Olgeirsson var kosinn besti leikmaður 2.deildar karla árið 2021 og er hann vel að því kominn. Sæþór var svo ásamt Bjarka Baldvinssyni kosinn í lið ársins í 2.deild og erum við gríðarstolt af þeim köppum.

Mikið af okkar leikmönnum fengu einmitt atkvæði í liðið auk þess sem Jóhann Kristinn þjálfari fékk atkvæði sem þjálfari ársins og Rafnar Máni atkvæði sem sá efnilegasti í deildinni.
 
Við erum ákaflega stolt af þessum miklu Völsungum í liðunum okkar og óskum þeim öllum innilega til hamingju með verðlaunin og frammistöðuna". Segir á Fésbókarsíðu Græna hersins.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744