Samningslausir sjómenn á aðalfundiAlmennt - - Lestrar 248
Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar var haldinn síðasta föstudag en til stóð að halda hann í desember sl.
Vegna COVID og fjöldatakmark-ana varð þó að fresta fundinum fram í janúar þegar heimilt var að halda „snertifundi“ fyrir allt að tuttugu fundargesti.
Á heimasíðu Framsýnar segir að fundurinn hafi farið vel fram og líflegar umræður um málefni sjómanna og stöðuna í kjaraviðræðunum við útgerðarmenn SFS.
Engin gleði er innan sjómanna með það mikla virðingarleysi sem SFS sýnir samtökum sjómanna með því að ganga ekki frá nýjum kjarasamningi við sjómenn sem hafa verið samningslausir á annað ár.
Stjórn deildarinnar var endurkjörin með einni undantekningu, Aðalgeir Sigurgeirsson gekk úr stjórn og í hans stað var Héðinn Jónasson kjörin í stjórn. Stjórnina skipa eftirtaldir:
Stjórn Sjómannadeildar Framsýnar starfsárið 2021:
Jakob Gunnar Hjaltalín formaður
Börkur Kjartansson varaformaður
Gunnar Sævarsson ritari
Aðalsteinn Steinþórsson meðstjórnandi
Héðinn Jónasson meðstjórnandi





























































640.is á Facebook