SA hefja nýtt starfsár með hringferð um landiðFréttatilkynning - - Lestrar 176
Samtök atvinnulífsins hefja nýtt starfsár með áherslu á útflutningsgreinar og efna til hringferðar um landið í því tilefni.
Samtökin halda vinnufund í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun, þann 5. júní, þar sem forsvarsfólk fyrirtækja og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir.
Á fundinum verður fjallað um helstu áskoranir fyrirtækja, hvernig stjórnvöld geti skapað aukin tækifæri og leiðir til að auka útflutningstekjur Íslands. Fundargestir fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í samtali um framtíð útflutningsgreina og lífsgæða í landinu.
Húsið opnar kl. 11:30 með hádegisverði fyrir gesti og hefst fundurinn sjálfur kl. 12.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu samtakanna.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, ræðir við félagsmenn á vinnufundi í Reykjanesbæ í gær.
Ljósmyndari:
BIG






























































640.is á Facebook