Rannsóknarstöðin Rif hefur ráðið Pedro Rodrigues sem forstöðumannAlmennt - - Lestrar 379
Rannsóknastöðin Rif hefur ráðið líffræðinginn Pedro Rodrigues í stöðu forstöðu-manns frá og með 10. maí 2021.
Í tilkynningu á vef rann-sóknarstöðvarinnar segir að Pedro hafi starfað um skeið við Náttúrustofu Suð-vesturlands en hann er portúgalskur að uppruna og hefur búið og stundað rannsóknir meðal annars í Portúgal, Chile og á Íslandi.
Hann er með doktorspróf í líffræði frá háskólanum á Asoreyjum og hefur áralanga reynslu af rannsóknum, kennslu og ýmsum störfum á sviði náttúruvísinda. Víðtæk reynsla hans og þekking á málaflokknum mun án efa nýtast vel í starfi Rifs á næstu árum.
Rannsóknastöðin Rif fagnar þessum stóra áfanga og býður Pedro Rodrigues hjartanlega velkominn til starfa sem forstöðumaður. Við hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu Rifs!





























































640.is á Facebook