Ráðstefna um ferðamál á norðurslóðum

IPTRN-samtökin (International Polar Tourism Research Network) standa fyrir ráðstefnu um ferðamál á heimskautasvæðum sem haldin verður á Raufarhöfn nú í

Ráðstefna um ferðamál á norðurslóðum
Fréttatilkynning - - Lestrar 648

IPTRN-samtökin (International Polar Tourism Research Network) standa fyrir ráðstefnu um ferðamál á heimskautasvæðum sem haldin verður á Raufarhöfn nú í lok mánaðarins.

Aðalskipulag hér á Íslandi er í höndum Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF) og fengu þau okkur hjá Rannsóknastöðinni Rif til liðs við sig ásamt ferðaþjónustusamtökunum Norðurhjara og verkefnastjóra Raufarhafnar og framtíðarinnar.

Fjallað verður um mörg mikilvæg málefni á ráðstefnunni og sérstök áhersla lögð á að skoða möguleika á sviði ferðaþjónustu hér á Raufarhöfn og í nærsveitum. Hvetjum við því heimamenn sérstaklega til að kynna sér málið og kíkja á dagskrána, en hana má finna hér.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744