Ráðið hefur verið í stöðu framkvæmda- og þjónustufulltrúa Norðurþings

Jónas Hreiðar Einarsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmda- og þjónustufulltrúa Norðurþings.

Jónas H. Einarsson.
Jónas H. Einarsson.

Jónas Hreiðar Einarsson hefur verið ráðinn í starf fram-kvæmda- og þjónustufulltrúa Norðurþings. 

Jónas starfaði áður sem verkefnastjóri á fram-kvæmdasviði Norðurþings og einnig sem framkvæmda- og þjónustufulltrúi í tímabundinni ráðningu, starfið er honum því ekki ókunnugt.

Jónas er fæddur og uppalinn á Húsavík. 

Hann útskrifaðist sem rafvirki frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2002 og er einnig með diplómu í viðskipta- og rekstrarhagfræði frá Háskólanum á Akureyri og diplómu í rafmagnsiðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Jónas hefur lengst af starfað sem rafvirki, en hefur að auki gegnt störfum sem mynda breiðan bakgrunn fyrir þau verkefni sem hann mun sinna í starfi sínu sem framkvæmda- og þjónustufulltrúi sveitarfélagsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744