Prjónagjöf í Skógarhlíð - Dóra Harðar kom færandi hendiAlmennt - - Lestrar 260
Á heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands segir að allt hafi ljómað af fegurð og gleði í Skógarhlíðinni í dag þegar Dóra Harðardóttir kom færandi hendi, og það ekki í fyrsta sinn.
"Dóra Harðardóttir, frá Húsavík, prjónaði 200 pör af vettlingum fyrir öll aldursbil sem hana langaði að gefa til styrktar góðu málefni. Verða vettlingarnir til sölu og rennur ágóði óskiptur til starfa og stuðnings í þágu krabbameins-greindra og aðstandenda þeirra.
Þetta er í annað sinn sem Dóra kemur færandi hendi með prjónagjöf til stuðnings Krabbameinsfélaginu. Sigrún Lillie Magnúsdóttir, forstöðumaður Ráðgjafarþjónustunnar, tók við prjónagjöfinni, hæstánægð með þetta ótrúlega handverk sem ber sköpunarkrafti Dóru, ástríðu og nákvæmni, einstaklega fagurt vitni. Kærar þakkir, Dóra" segir á heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands.
Á meðfylgjandi mynd af heimasíðu Krabbameinsfélagsins er Sigrún Lillie að taka við gjöfinni úr hendi Dóru.





























































640.is á Facebook