Ósk sæmd gullmerki Framsýnar

Á dögunum var Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar-stéttarfélags sæmd gullmerki félagsins fyrir vel unninn störf í þágu félagsmanna og þar með

Ósk sæmd gullmerki Framsýnar
Almennt - - Lestrar 339

Ósk Helgadóttir.
Ósk Helgadóttir.

Á dögunum var Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar-stéttarfélags sæmd gullmerki félagsins fyrir vel unninn störf í þágu félagsmanna og þar með samfélagsins alls í Þingeyjarsýslum. 

Á heimasíðu Framsýnar segir að stjórn félagsins hafi verið sammála um að veita varaformanni þessa æðstu viðurkenningu félagsins enda unnið hreint út sagt frábært starf í þágu félagsins til fjölda ára.

Athöfnin fór fram í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 að viðstöddum stjórn félagsins, trúnaðarráði, stjórn Framsýnar-ung, formönnum STH og Þingiðnar auk starfsmanna stéttarfélaganna.

Í tilefni dagsins var boðið upp á hátíðardagskrá auk þess sem formaður félagsins, Aðalsteinn Árni Baldursson, flutti ávarp þar sem hann þakkaði varaformanni sérstaklega fyrir framlag hennar í þágu félagsmanna um leið og hann óskaði henni til hamingju með að bætast í hóp þeirra forystumanna innan félagsins sem hefðu skarað fram úr í gegnum tíðina.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744