Opnađ án takmarkana um Jökulsárbrú

Eftir samráđsfund, Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórans á Norđurlandi eystra, Vegagerđarinnar og Veđurstofu Íslands hefur brúin yfir

Opnađ án takmarkana um Jökulsárbrú
Almennt - - Lestrar 234

Jökulsárbrú. Ljósmynd Ţorgeir Baldursson.
Jökulsárbrú. Ljósmynd Ţorgeir Baldursson.

Eftir samráđsfund, Almanna-varnadeildar Ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórans á Norđurlandi eystra, Vegagerđarinnar og Veđurstofu Íslands hefur brúin yfir Jökulsá á Fjöllum veriđ opnuđ án takmarkanna.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norđurlandi eystra segir ađ vatnshćđ í Jökulsá á Fjöllum hafi lćkkađ og ţví hafi veriđ tekin ákvörđun í samráđi viđ Vegagerđina ađ hleypa ótakmarkađri umferđ yfir brúna viđ Grímsstađi.

Ákvörđunin er byggđ á hagstćđri veđurspá, jöfnu hitastigi og lítilli úrkomuspá. Ákvörđunin er jafnframt byggđ á niđurstöđum sem vísindamenn hjá Veđurstofu Íslands hafa tekiđ saman og sýna ákveđna ţróun á hegđun árinnar, íssins og fleira.
 
Ákveđiđ jafnvćgi virđist hafa náđst og ţess vegna ákvörđun tekin, um ađ opna ţjóđveg 1, Hringveg um Mývatns- og Möđrudalsörćfi án hafta.
 
Vísindamenn hafa eftir sem áđur, stöđugt eftirlit međ mćlitćkjum og brugđist verđur viđ fyrirvaralaust, ef eitthvađ óeđlilegt gerist.

  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744