Óli Halldórs býđur sig fram til embćttis varaformanns VG

Óli Halldórsson hefur tilkynnt frambođ sitt til embćttis varaformanns Vinstrihreyfingarinnar grćns frambođ en landsfundur flokksins fer fram 6.-8. október.

Óli Halldórs býđur sig fram til embćttis varaformanns VG
Fréttatilkynning - - Lestrar 817

Óli Halldórsson
Óli Halldórsson

6.-8. október verđur haldinn landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – grćns frambođs. Á ţeim fundi mun ég bjóđa mig fram til embćttis varaformanns Vinstri grćnna. Mun ég ţví nýta tímann nćstu vikurnar og kynna fyrir félögum í flokknum og almenningi pólitísk stefnumiđ mín.

Mikill hljómgrunnur er í samfélaginu fyrir skýrum áherslum Vinstri grćnna og hefur hreyfingin fest sig í sessi sem eitt öflugasta stjórnmálaafl á Íslandi. Nú er lag til frekari sóknar fyrir hreyfinguna.

Nćsta vor fara fram sveitarstjórnarkosningar og er mikilvćgt ađ flokkurinn nýti ţau sóknarfćri sem hann hefur. Ţá er einnig eđlilegt ađ í forystu flokksins veljist fólk međ sćti í sveitarstjórn til ađ liđsinna viđ undirbúning kosninganna.

Ég er …

… starfandi og virkur innan Vinstri grćnna og hef veriđ til nokkurra ára

… í sveitarstjórn Norđurţings fyrir hönd hreyfingarinnar. Frá sveitarstjórnarkosningunum 2014, ţar sem Vinstri grćn hlutu 27% fylgi í Norđurţingi, hefur hreyfingin veriđ ađili ađ meirihlutasamstarfi ţar sem ég hef veriđ formađur byggđarráđs.

… í 5. sćti á lista Vinstri grćnna í Norđausturkjördćmi frá síđustu kosningum til Alţingis og hef tekiđ sćti á ţingi sem varaţingmađur. Sjá:  http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=1314

… virkur í náttúruverndarmálum og hef veriđ um alllangt skeiđ og er nú formađur svćđisráđs Norđursvćđis Vatnajökulsţjóđgarđs og sit ţar einnig í stjórn.

Ég vil …

… leggja mig fram um ađ brúa bil milli hópa og sjónarmiđa, t.a.m. milli ungs fólks og eldra og ekki síđur milli höfuđborgar og landsbyggđar

… vinna ađ ţví ađ breikka grunn Vinstrihreyfingarinnar – grćns frambođs

… koma meginmálefnunum Vinstri grćnna, s.s. félagshyggju, jöfnuđi og umhverfisvernd, í framkvćmd víđar og betur um allt land, ekki síst á sveitarstjórnarstiginu.

… fćra stóru málin inn á vettvang nćrsamfélaga og sveitarfélaga, s.s takast á viđ loftlagsmálin af alvöru

… leggja hönd á plóg í innra starfi Vinstrihreyfingarinnar – grćns frambođs.

Frekari persónulegar upplýsingar:

Fćddur 10. maí 1975

Alinn upp á Húsavík og búsettur ţar. Ćttir víđa um NA-land; í Vopnafjörđ og Ţingeyjarsýslur

Ađalstarf:  Forstöđumađur Ţekkingarnets Ţingeyinga (frumkvöđull, stofnandi)

Giftur Herdísi Ţ. Sigurđardóttur, skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík

4 börn

Auk Húsavíkur búiđ á höfuđborgarsvćđinu um árabil (í 3 sveitarfél. – Rvk,-Seltjnes-Kóp) + stuttlega á Englandi í námi

Menntun í heimspeki, umhverfisfrćđi og uppeldisfrćđi (BA, MA, kennsluréttindi)

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744