15. feb
Nýr samningur Skútustaðahrepps við Mývetning, íþrótta og ungmennafélagAlmennt - - Lestrar 296
Á fundi sveitarstjórnar Skútustaðahrepps á dögunum var lagður fram nýr samningur Skútustaðahrepps og Mývetnings, íþrótta- og ungmennafélags, til næstu þriggja ára.
Samningi þessum er ætlað að efla samstarf Skútustaðahrepps og Mývetnings um eflingu íþróttastarfs með megináherslu á öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-16 ára, styrkja starf Mývetnings og efla félagsaðstöðu Mývetnings.
Upphæð samningsins pr. ár er 1 m.kr. og hækkar framlagið um 35% á ári frá síðasta samningi. Sveitarstjórn samþykkti samninginn samhljóða en fjárframlagið er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.





























































640.is á Facebook