Mývetningar yfir 500 í fyrsta skipti í 25 ár

Þann 1. mars s.l. urðu þau tímamót að íbúafjöldi Skútustaðahrepps fór í 500 manns í fyrsta skipti síðan 1993, samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu

Mývetningar yfir 500 í fyrsta skipti í 25 ár
Almennt - - Lestrar 481

Jónas Þór Ingólfsson íbúi númer 500.
Jónas Þór Ingólfsson íbúi númer 500.

Þann 1. mars s.l. urðu þau tímamót að íbúafjöldi Skútustaðahrepps fór í 500 manns í fyrsta skipti síðan 1993, samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands. 

Í dag eru þeir 505. Síðan 2013 hefur íbúum Skútustaðahrepps fjölgað úr 370 í 505 talsins sem er hvorki meira né minna en 36,5% fólksfjölgun.

Á rúmlega einu ári hefur íbúum fjölgað um tæp 19%, eða úr 425 í 505. Um 130 manns hafa annað ríkisfang en íslenskt eða um fjórðungur.

í frétt á heimasíðu Skútustaðahrepp segir að íbúafjöldi hafi sveiflast nokkuð í gegnum tíðina. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru þeir fæstir hér 276 talsins árið 1910 en flestir árið 1980 eða 547 sem var í miðjum Kröflueldum. Þetta var á árum Kísiliðjunnar og hélst fólksfjöldinn yfir 500 allt til ársins 1994 en þá fór hann niður í 497 íbúa. Eftir það fækkaði íbúum smátt og smátt. Kísiliðjunni var lokað í nóvember 2004 en þá voru íbúar 442. Í kjölfarið fór að halla verulega undan fæti og fór fólksfjöldinn niður í 370 árið 2013. Síðan þá hefur þróunin snúist við.

Þessi fjölgun í Skútustaðahreppi helst í hendur við öflugt atvinnulíf. Harðduglegir og útsjónarsamir Mývetningar hafa hér byggt upp í sameiningu öflugt sveitarfélag. Íbúafjölgunina undanfarin ár má án nokkurs vafa fyrst og fremst rekja til uppgangs ferðaþjónustunnar og að hún er orðin að heilsárs atvinnugrein í meira mæli en áður. Ungt fjölskyldufólk hefur flutt í sveitina og erlendu vinnuafli fjölgar. Þessi mikla fólksfjölgun þrýstir á innviði sveitarfélagsins. En þetta er fyrst og fremst jákvæð áskorun fyrir sveitarfélagið.

Íbúi nr. 500 í Skútustaðahreppi er Jónas Þór Ingólfsson sem flutti lögheimili sitt nýverið í Helluvað. Hann er uppalinn í Mývatnssveit, fór suður að mennta sig sem mannvirkjajarðfræðingur en er nú snúinn aftur heim í heimahagana. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744