Mynd dagsins - Í rammaðri sýnMynd dagsins - - Lestrar 409
Mynd dagsins var tekin í við úti-listarverkið á Þeistareykjum en það ber nafnið Römmuð sýn.
Af vef Landsvirkjunar: Landsvirkjun hefur ætíð látið vinna listaverk í tengslum við byggingu helstu mannvirkja sinna.
Haustið 2018 var efnt til hugmyndasamkeppni um listaverk í nágrenni við jarðvarmastöðina að Þeistareykjum.
Jón Grétar Ólafsson arkitekt hlaut fyrstu verðlaun. Dómnefnd sagði að tillaga hans, Römmuð sýn , væri kröftug og djörf og vekti athygli á Þeistareykjum sem áningarstað.
„Í verkinu er landslagið hafið upp og rammað inn á skemmtilegan hátt. Verkið býr yfir aðdráttarafli og vekur forvitni þeirra sem leið eiga um svæðið. Upplýsingar um nærumhverfið auka á upplifun verksins,“ sagði dómnefndin.
Einn af fjórum römmum listaverksins en í gegnum þá má njóta listaverka móður náttúru í Rammaðri sýn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.






























































640.is á Facebook