Meitlar endanlega óréttlćtiđ í stein

Stjórn og trúnađarmannaráđ Framsýnar hefur sent frá sér ályktun um úrskurđ Kjararáđs sem ađ mati félagsins meitlar endanlega óréttlćtiđ í stein er varđar

Meitlar endanlega óréttlćtiđ í stein
Fréttatilkynning - - Lestrar 538

Stjórn og trúnađarmannaráđ Framsýnar hefur sent frá sér ályktun um úrskurđ Kjararáđs sem ađ mati félagsins meitlar endanlega óréttlćtiđ í stein er varđar kjör fólks á íslenskum vinnumarkađi.
 
Ályktuni er svohljóđandi:
 

„Framsýn, stéttarfélag mótmćlir harđlega ţeirri stefnu Kjararáđs ađ skara sífellt eld ađ köku ţeirra sem mest hafa á međan hópar fólks hér á landi eiga vart til hnífs né skeiđar.

Undanfarna mánuđi hafa laun opinberra starfsmanna sem falla undir úrskurđ Kjararáđs hćkkađ mun meira en annarra hópa í ţjóđfélaginu. Nú síđast úrskurđađi ráđiđ um launahćkkanir til handa dómurum upp á hundruđir ţúsunda á mánuđi og meitlađi ţar endanlega óréttlćtiđ í stein. Hvađ Kjararáđi gengur til međ ţessum gríđarlegu hćkkunum er algjörlega óráđin gáta, enda engan veginn í takt viđ ađrar launahćkkanir í landinu.

Um er ađ rćđa met í ójöfnuđi í skjóli valdahafa ţjóđarinnar sem leiđist ekki ađ hćla eigin verkum og líkja ţeim viđ Íslands- og heimsmet. Ákvörđun Kjararáđs er vissulega heimsmet, um ţađ verđur ekki deilt. En hver ber ábyrgđ á Kjararáđi?

Međan vaxtaokur tröllríđur ţjóđfélaginu verđlaunar Kjararáđ m.a. bankastjóra Landsbankans međ rúmlega 565 ţúsund króna hćkkun á mánuđi, sem jafngildir mánađarhćkkun til 23 verkamanna samkvćmt kjarasamningi Starfsgreina-sambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.

Bankastjóri Landsbankans talar fyrir blússandi uppgangi í ţjóđfélaginu á sama tíma og misskiptingin í landinu eykst stöđugt. En ţađ ríkir ekki almennt góđćri hjá verkafólki sem fékk um 25 ţúsund króna launahćkkun í síđustu kjarasamningum. Ţađ ríkir heldur ekki góđćri hjá öldruđum, öryrkjum og atvinnuleitendum. Menn sem halda öđru fram eru ekki í takt viđ ţjóđarsálina.

Ţögn Seđlabanka Íslands um ţessar mundir er athyglisverđ. Hefur Seđlabankastjóri ekki áhyggjur af ţví ađ úrskurđur Kjararáđs kalli á aukna verđbólgu og óstöđugleika? Ekki skortir á yfirlýsingar bankans ţegar verkafólk á í hlut, fólkiđ sem skapar ţann gjaldeyri sem efnahagslífiđ og ţar međ velferđin á Íslandi byggir á.“


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744