Meirihluti Sveitarstjórnar Norðurþings skipaður konumAlmennt - - Lestrar 458
Á 94. fundi Sveitarstjórnar Norðurþings þann 27. ágúst sl. bar það til tíðinda að meirihluti aðalmanna sveitarstjórnar var skipaður konum.
Á heimasíðu Norðurþings segir að ekki hafi verið rýnt í sögulegar heimildir um hvort svo sé í fyrsta skipti.
Líklegast þykir þó að það hafi gerst áður að meirihluti kvenna hafi setið einstaka fund í Sveitarstjórn Norðurþings þegar litið er til innkomu varamanna á þeim tiltekna fundi.
Kannski er einhver þarna úti sem veit betur?
Sveitarstjórn Norðurþings á 94.fundi. T.v. Hjálmar Bogi Hafliðason, Kristján Þór Magnússon, Hrund Ásgeirsdóttir, Hafrún Olgeirsdóttir, Heiðbjört Þóra Ólafsdóttir, Silja Jóhannesdóttir, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Óli Halldórsson og Bergur Elías Ágústsson.
Ljósmynd Gaukur Hjartarson






























































640.is á Facebook