24. feb
Margir sýna lista Sjálfstæðisflokksins áhugaFréttatilkynning - - Lestrar 999
Á fjölmennum aðalfundi Sjálfstæðisfélags Húsvíkur og nágrennis voru komandi sveitarstjórnarkosningar til umræðu.
Fram kom að margir hafa áhuga á að sitja á lista flokksins. Það er því krefjandi og ánægjulegt verkefni sem bíður uppstillinganefnd. Engu að síður er vilji til þess að taka við fleiri umsóknum frá áhugasömu fólki um setu á listanum og er fólki bent á að hafa samband við Hannes Höskuldsson eða Jón Helga Björnsson.
Í tilkynningu segir að málefnavinna muni fljótlega fara af stað og er reiknað með því að Sjálfstæðisflokkurinn tefli fram öflugum lista og áhugaverðri málefnaskrá.





























































640.is á Facebook