Mærudagar framundanAlmennt - - Lestrar 582
Allt stefnir í glæsilega Mærudaga um helgina og boðið verður upp á stútfulla dagskrá af skemmti-atriðum.
“Það verður hverfahittingur á föstudagskvöldið og við hvetjum bæjarbúa til að dressa sig upp í sínum hverfislit og hafa gaman saman” segir Guðrún Huld Guðmundsdóttir framkvæmda-stjóri Mærudaganna.
Laugardagurinn er aðaldagurinn þar sem mikið verður um að vera. Froðurennibraut, krakkahlaup, barnafjör á bryggjunni þar sem Bjarni töframaður mun stíga á stökk og skemmta sem og dansatriði frá Steps.
Þá tekur Páll Óskar tekur nokkur lög og gefur eiginhandaáritanir. Einnig verður nammikast frá sælgætisgerðinni Freyju.
Matarvagnar og tvö tívolí verða einnig á bryggjunni svo það verður heljarinnar karnival stemmning á bryggjunni um helgina.
“Það verða síðan glæsilegir kvöldtónleikar á hafnarstéttinni þar sem húsvískt tónlistarfólk mun koma fram ásamt Júróvísionstjörnunni Clubdub og Páli Óskari” segir Guðrún Huld en hátíðin endar svo á glæsilegri flugeldasýningu.





























































640.is á Facebook