10. feb
Lýsir yfir stuðningi við ályktun Samfylkingarinnar á AkureyriFréttatilkynning - - Lestrar 589
Á ársfundi Samfylkingarfélagsins í Þingeyjarsýslu í gærkveldi var lýst yfir stuðningi við eftirfarandi ályktun sem Samfylkingin á Akureyri sendi frá sér í síðustu viku:
Undanfarin misseri hefur fylgi við Samfylkinguna verið alls óviðunandi. Núverandi forystu Samfylkingarinnar hefur ekki tekist að skapa traust kjósenda á flokknum.
Til að ná Samfylkingunni upp úr þeirri djúpu lægð sem hún er nú í telur Samfylkingin á Akureyri nauðsynlegt að boðað verði til landsfundar fyrir vorið. Þar gefist forystunni tækifæri til að endurnýja umboð sitt eða nýr formaður og forysta verði kjörin. Það má ekki seinna vera til að nýrri forystu gefist tími til að undirbúa málefni, efla starf flokksins og stuðla að endurnýjun fyrir næstu alþingiskosningar.
Jafnaðarstefnan á mikinn stuðning meðal Íslendinga og jafnaðarmenn á Íslandi þurfa að endurvinna traust kjósenda. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að kjósendur trúi því að Samfylkingin standi vörð um hefðbundin baráttumál jafnaðarmanna.





























































640.is á Facebook