Ljósin voru tendruð á jólatrénu í morgun

Jólaljósin voru tendruð á jólatrénu á Húsavík í morgun, og ekki einu sinni heldur tvisvar.

Ljósin voru tendruð á jólatrénu í morgun
Almennt - - Lestrar 153

Jólatréð er fallegt Sitkagreni.
Jólatréð er fallegt Sitkagreni.

Jólaljósin voru tendruð á jólatrénu á Húsavík í morgun, og ekki einu sinni heldur tvisvar.

Vegna samkomutakmarkanna var ekki hægt að halda hefð-bundinn viðburð í kringum tendrunina.

Þess í stað voru ljósin kveikt í tvígang fyrir yngstu íbúa Húsavíkur; annars vegar fyrir annan og þriðja bekk í Borgarhólsskóla og hins vegar fyrir fyrsta bekk Borgarhólsskóla og leikskólabörn á Grænuvöllum. 

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Hjálmar Bogi Hafliðason, Rafnar Máni Gunnarsson og Arnþór Þórsteinsson spiluðu og sungu nokkur jólalög og börnin tóku vel undir.

Skyrgámur, Stekkjastaur og Giljagaur komu færandi hendi ofan af fjöllum og gengu með börnunum í kringum jólatréð.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744